Starfslýsing og hæfnikröfur í kökugerð
Upplýsingasíða með starfslýsingu og hæfnikröfum fyrir kökugerðarmenn (konditora).
Kökugerðarmenn (konditorar) vinna við framleiðslu á fjölbreyttu úrvali á kökum, smákökum, tertum, konfekti, eftirréttum, ís og sælgæti og fl. Kökugerðarmenn starfa í bakaríum, kökugerðarhúsum (konditori), hótelum og veitingahúsum og sælgætisgerðum og fleiri stöðum þar sem sérþekkingar þeirra nýtist. Kökugerð er löggilt iðngrein og rétt til starfa í iðngreininni eru þau sem leyst hafa til sín sveinsbréf í kökugerð sem gefin eru út af stjórnvaldi á Íslandi og þau sem hafa erlent sveinsbréf í greininni. Sveinsbréfið veitir alþjóðleg fagréttindi og fagnámið veitir sérfhæfðan undirbúning til starfa í faggreininni.
Kökugerðarmaður
Vinnur sjálfstætt að almennum og sérhæfðum verkefnum í köku- og tertuframleiðslu.
Vinnur við framleiðslu á stórum og smáum kökum; rjómakökum, ávaxtakökum með hlaupi, kransakökum, bökum, snittum, geymsluþolnum bökunarvörum, smákökur, kexi rúlluðu deigi, formkökum, skúffukökum, krókant, marsipan, marens og fl.
Framleiðir sérvöru s.s. hræðar og þeyttar kökur eftir mismunandi tilefni.
Framleiðir vörur úr súkkulaði (Chocolatier) konfekt, súkkulaðiegg og aðrar sérvörur, krembollur, karamellur, brjóstsykur, karmelluhúðaðar hnetur og hnetumassa, húpaðar vörur og fl.
Getur útbúið skreytingaefni, handskreytir, útbýr skreytingar úr marsipani, súkkulaði, sykri og fl.
Framleiðir vörur úr söltum deigum, ostadeigi og pinnamat.
Vinnur með smjördeig, hálfunnar kökur, meðlæti með forréttum, stór og smá vínarbrauð, hádegisverðarvörur og fl
Útbýr eftirrétti; bakaða, soðna, steikta og samsetta; setur saman bragðtegundir; útbýr ís og ístertur, frómas, sérfyllingar og krem.
Bakar tertur á mörgum hæðum, s.s. brúðartertur og veislukökur og útbýr viðeigandi skreytingar.
Framleiðir smárétti fyrir kökugerðar- og kaffihús.
Tekur á móti unnu og óunnu hráefni og flokkar. Gerir samanburð á nótu og þeirri vöru sem afgreidd er og gengur frá hráefnum til geymslu.
Metur ástand og gæði hráefnis með hliðsjón af umbúðamerkingum, hitastigi og almennum gæðakröfum, nýting bragð og litarefna o.fl.
Vinnur í samræmi við reglur sem gilda um innra eftirlit á vinnustöðum og getur verið virkur eftirlitsaðili í framkvæmd innra eftirlits á vinnustað.
Skipuleggur verkferla með tilliti til viðfangsefna, forgangsraðar verkefnum og undirbýr vinnusvæði.
Skipuleggur öryggisvarnir, bregst við vinnuslysum, o.s.frv.
Vinnur við vélar, tæki, áhöld og handverkfæri sem í notkun eru hverju sinni, annast umhirðu þeirra og hreinsun.
Á samskipti við viðskiptavini, birgja og annað samstarfsfólk.
Vinnur eftir uppskriftum, breytir eftir framleiðslumagni og velur vinnsluaðferð við hæfi hverju sinni.
Leiðbeinir um fagleg málefni og viðskiptavinum um val á vörum í samræmi við óskir og tilefni.
Reiknar út hollustu- og næringargildi helstu framleiðsluvara og vinnur innihaldslýsingar.
Stillir upp vöru í búð og kynnir fyrir neytendum og viðskiptavinum.
Vinnur að áætlanagerð og verkefnastjórnun á vinnustað, reiknar út verð á vörum og þjónustu. Metur arðsemi og rýrnun.
Starfar í samræmi við siðareglur greinarinnar.
Hæfnikröfur í kökugerð
Sjálfstæði og ábyrgð
Þekkir almenn ákvæði um réttindi og skyldur fagmanna.
Hefur tileinkað sér orðaforða greinarinnar bæði á íslensku og erlendum málum.
Getur tjáð sig um fagleg málefni greinarinnar á íslensku og erlendum málum og leiðbeint um fagleg málefni á ábyrgan hátt.
Getur tekist á við viðbótarnám og/eða aukið sérnám tengt kökugerð.
Viðhorf og siðfræði
Hefur skilning á mikilvægi góðrar þjónustu og gæðum í þjónustu.
Þekkir siðareglur greinarinnar s.s. um virðingu fyrir faggreininni, virðing fyrir hráefni og nýtingu þess, o.s.frv.
Getur metið störf sín og annarra í greininni á gagnrýnininn hátt og metið með hliðsjón af fagfræði greinarinnar.
Innra eftirlit og öryggismál
Getur tekið á móti unnu og óunnu hráefni, flokkað það og metið ástand og gæði með hliðsjón af umbúðamerkingum, hitastigi og almennum gæðakröfum og gengið frá því til geymslu.
Þekkir öryggisreglur sem gilda um innra eftirlit á vinnustaðnum hvað varðar viðmiðunarmörk svo sem hitastigsmörk, hreinlæti og fl., svo og vinnureglur um rekjanleikja vöru og þjónustu og afgreiðslu á vörum og þjónustu.
Getur borið ábyrgð á gæðastöðlum um innra eftirlitskerfi vinnustaðar.
Getur þrifið og sótthreinsað húsnæði og búnað samkvæmt stöðluðum hreinlætiskröfum.
Metur ástand og gæði (gæðamat) hráefnis með hliðsjón af umbúðamerkingum, hitastigi og almennum gæðakröfum um öryggi og gæði matvæla.
Þekkir mikilvægi öryggisvarna, helstu orsakir vinnuslysa og þær reglur sem gilda um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu.
Hráefnisinnkaup og verkskipulag
Getur skipulagt verkferla með tilliti til viðfangsefna, forgangsraða verkefnum og undirbúa vinnusvæði, gert pöntunar- og verkefnalista.
Tekur þátt í að leiðbeina nemum og öðru starfsfólki.
Hefur skilning á mikilvægi góðrar þjónustu og gæðum í þjónustu.
Metur ástand og gæði (gæðamat) hráefnis með hliðsjón af umbúðamerkingum, hitastigi og almennum gæðakröfum um öryggi og gæði matvæla.
Kökugerð
Getur unnið sjálfstætt að almennum og sérhæfðum verkefnum tengdum kökugerð s.s. á kökuframleiðslu; á hrærðum kökum og þeyttum sérvörum; framleiðslu á konfekti og vörum úr súkkulaði; á rúlluðu deigi, bökum og tertum; á eftirréttum; ís og ístertum og tertum á mörgum hæðum s.s. brúðkaups- og veislutertum og borið ábyrgð á niðurstöðunni.
Getur prófað og bragðgreint súkkulaði
Getur beitt viðeigandi handverkfærum og tækjum við vinnu sína.
Getur unnið eftir uppskriftum, breytt framleiðslumagni og valið vinnsluaðferð sem telst vera við hæfi hverju sinni.
Getur stillt upp vöru í búð og kynnt fyrir neytendum og viðskiptavinum.
Vinnur með hráefni, hjálparefni o.fl. sem notuð eru í greininni, þekkir meðferð þeirra, flokkun og gæðamat.
Getur sett upp áætlanir og tekið þátt í verkefnastýringu.
Fagfræði
Hefur umfangsmikla hráefnisþekkingu á vörum tengdum kökugerð.
Hefur þekkingu á þeim vélum og áhöldum sem konditorar nota við vinnu sína.
Hefur tileinkað sér aðferðir til að hámarka nýtingu hráefnis og reiknað út rýrnun á vörum.
Getur unnið í samræmi við uppskriftir og getur beitt viðeigandi vinnsluaðferð hverju sinni ásamt réttu hitastigi, baksturstíma o. fl.
Getur reiknað út hollustu- og næringargildi helstu framleiðsluvara.
Getur sett saman innihaldslýsingu á vörum með ábyrgum hætti.
Getur reiknað út verð á vöru og þjónustu og metið arðsemi.
Setur saman uppskriftir og verklýsingar fyrir vörur og verk og vinnur að vöruþróun.
Þekkir helstu áhrifaþætti fæðuofnæmis og fæðuóþols.
Hefur þekkingu á mikilvægi umhverfisverndar í starfi sínu.
Samþykkt hinn 2. desember 2015 af
