Hver er konditor?

Konditor er iðngrein sem löggilt var á Íslandi með útgáfu fyrstu iðnaðarlaganna 1927 og kallast á Íslandi kökugerð. Konditorar starfa við konditori (kökugerð), í bakaríum, sinna sælgætisgerð og vinna á veitingahúsum við tertu- og kökubökun, gerð eftirétta og skreytingar.

Kökugerð og bakarí
Konfekt og súkkulaðigerð
Skreytingar og hönnun
Vöruþróun og matarupplifun
Konditor við vinnu

Í samanburði við gamlar iðngreinar eins og bakaraiðn er konditorfagið harla ungt. Á 15. öld tóku bakarar í Evrópu að baka vörur úr hunangi, þurrkuðum ávöxtum og kryddum. Kölluðust þeir hunangskökubakarar og stofnuðu sitt fyrsta iðngildi árið 1643 í Nürnberg í Þýskalandi. Konditorfagið er mjög skylt bakaraiðn og þróaðist út frá henni. En eftir því sem vöruúrvalið jókst varð þörfin fyrir sérstaka nafngift stéttarinnar greinilegri, nafngift sem endurspeglaði starfsviðið. Þeir bakarar sem þannig sérhæfðu sig nefndu sig því "sykurbakara". Það var svo á 16. öld að latneska orðinu "condire" tók bregða fyrir í samhengi sykurbaksturs; upp frá því breyttist starfsheitið í "konditor".

Kökugerð á Íslandi

Kökugerð á Íslandi fyrr og nú

Kökugerð á Íslandi hefur þróast mikið frá því um 1900. Fyrstu konditoríuhúsin voru stofnsett í upphafi 20. aldar og hafa verið hornsteinn í matarmenningu landsmanna síðan.

Konditoraprófin hófust árið 1926 þegar fyrstu sveinspróf iðnaðarmanna voru tekin. Þróun faglegrar menntunar hefur verið stöðug og nú er boðið upp á nám við verknámaskóla bæði á Íslandi og erlendis. Íslenskir konditorar hafa náð góðum árangri á alþjóðlegum keppnum og eru eftirsóttir víða um heim.

Hvar get ég lært að verða konditor?

Íslenskir konditorar sækja nám sitt að mestu erlendis, þar sem námskrá og leiðsögn er best þróuð. Helstu áfangastaðir fyrir konditoranema eru Danmörk og Þýskaland.

Danmörk

ZBC í Ringsted býður upp á konditoranám þar sem nemendur fá bæði bóklega og verklega þjálfun. Námið er í samstarfi við dönsk fyrirtæki og nýtur góðs orðspors.

Þýskaland

Fjöldi meistaraskóla í Þýskalandi bjóða upp á konditoranám. Þýsk hefð í konditoríiðnaðinum er löngu komin og skólarnir búa yfir mikilli reynslu og aðstöðu.

Námstími: 3 ár og 7 mánuðir

Konditor við vinnu

Starfslýsing og hæfnikröfur

Konditor vinnur við framleiðslu á:

Kökur og tertur
Konfekt og súkkulaði
Eftirrétti
Ís
Skreytingar

Hæfnikröfur:

Sjálfstæði og frumkvæði
Fagþekking og reynsla
Gæðavitund
Innra eftirlit
Siðareglur